Flýtilyklar
Fréttir
Sólskógar auglýsa eftir starfsfólki
09.01.2024
Viltu starfa í Kjarnaskógi og taka þátt í að framleiða plöntur í skóga framtíðarinnar
Sólskógar eru vaxandi garðyrkjufyrirtæki á Akureyri sem ræktar garðplöntur fyrir heimamarkað og skógarplöntur fyrir allt landið.
Við erum að leita að starfsfólki frá 1. apríl. Annars vegar aðila með reynslu á lyftara og hins vegar almennt starfsfólk. Möguleikar eru á framtíðarstarfi.
Starfsmaður í teymi á skógarplöntusvæði
Helstu verkefni
• Flutningar plantna innan svæðis
• Pökkun og flokkun skógarplantna
• Sáning og umplöntun skógarplantna
• Ýmis önnur verkefni í samráði við stjórnendur
Menntunar- og hæfniskröfur
• Lyftarapróf og reynsla á lyfturum er skilyrði
• Reynsla úr garðyrkju og/eða skógræktarstörfum er kostur
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Jákvætt viðhorf og hæfni til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni
• Lipurð og góð færni í samskiptum
• Góð kunnátta í íslensku og/eða ensku
Einnig eru við að leita að almennum starfsmönnum
Helstu verkefni
• Flutningar plantna innan svæðis
• Pökkun og flokkun skógarplantna
• Sáning og umplöntun skógarplantna
• Ýmis önnur verkefni í samráði við stjórnendur
Menntunar- og hæfniskröfur
• Reynsla úr garðyrkju og/eða skógræktarstörfum er kostur
• Jákvætt viðhorf og hæfni til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni
• Lipurð og góð færni í samskiptum
• Góð kunnátta í íslensku og/eða ensku
Einnig erum við farin að taka við umsóknum um sumarvinnu
Umsóknir og fyrirspurnir sendist á katrin@solskogar.is
Lesa meira
Skógræktarfélag Eyjafjarðar 90 ára
12.05.2020
óskum nágrönnum okkar í Skógræktarfélagi Eyjafjarðar innilega til hamingju með 90 blómstrandi ár.
Lesa meira
Jólaopnun í Sólskógum
24.11.2016
24 nóv - 30. nóvember er opið virka daga 10-16
1.-6. des er opið alla daga 11-17
7.-13. des er opið alla daga 10-19
14.-22. des er opið alla daga 10-21
23. des er opið 10-16
Lokað á aðfangadag
Lesa meira
Jólasveinar og lifandi tónlist um helgina
11.12.2015
Ragga og Ingi koma og spila fyrir okkur jólalög um helgina. Þau verða í gróðurhúsinu á milli 14-16 bæði á laugardag og sunnudag. Von er á jólasveini í bæinn og kemur hann við í Sólskógum um kl 15 á laugardag og 14-14:30 á sunnudag og kætir börn sem fullorðna. Kakó og piparkökur verða í boði.
Lesa meira
Færð og opnun 5. desember, uppfært kl 11. 6. des
05.12.2015
Ekki verður opnað í dag nema veður gangi niður. Ófært er eins og er inn í gróðrarstöð.
Lesa meira
Sólskógum lokað á Fljótsdalshéraði
30.11.2015
Búið er að loka Sólskógum á Héraði. Þökkum Austfirðingum ánægjuleg viðskipti þau 27 ár sem við störfuðum á Fljótsdalshéraði
Lesa meira